Jul 20, 2005
Myndir :)

Jæja þá eru myndirnar úr afmælinu komnar inn ! Það var mjög gaman, fámennt en góðmennt :) Loksins náði ég að djamma með Írisi frænku, sem ´var mjög gaman. Fórum á Vegamót og fleiri góða staði og ég og Eva dönsuðum eins og brjálæðingar. En ég er samt búin að ákveða að slaka núna á... Vín lætur mann bara gera allskonar sem að maður vill ekki gera. Nú er ég líka búin að bóka farið út og ég fer 27 ágúst, hlakka bara rosalega til að fara frá þessu skeri þar sem ég er svo komin með nóg. Það verður líka fínt fyrir lansbúana að fá smá frí frá vitleysunni í mér :) Veit allaveganna um nokkra aðila sem að geta ekki beðið...þið vitið hverjir það eru ! Tinna litla krútt og Ranald ætla að leyfa mér að gista í alveg fyrst og ég veit að það verður bara mjög notalegt, síðan erum við mamma að skipuleggja ferð til Cran Canari yfir jólin..vona að það gangi allt saman upp, langar svo að eyða jólunum annarsstaðar en heima á Íslandi. Vá þetta hljómar eins og ég hati landið en ég geri það alls ekki, æ þið fattið þegar maður fær nóg. Helst langar mig bara að nota haustið í að ferðast, mig langar svo til Berlínar, bara eitthvað ég hef aldrei pælt í þessari borg fyrr en kynntist Davíð og hann er búin að tala svo mikið um hvað er fallegt þar og sýna mér allskonar myndir og nú er ég að deyja mig langar svoo, mig langar líka til Prag og Austurríkis, en jæja nóg komið ef að einhver vill gefa mér pening fyrir þessum draumum mínum þá hafið þið bara samband við mig. En já ég Guðrún og Sirríur fórum á snoop á sunnudaginn, vá hvað hann er mikill töffari og það var líka annað sniðugt að gerast á sunnudaginn Guffi fallegi frændi minn spilaði sinn fyrsta leik með snilldarliðinu Þrótti í sumar og mjög gaman þetta var þeirra fyrsti sigur í sumar..Held að það dé allt Guffa að þakka, Til hamingju frændi :) Auður ég sakna þín og setti myndirnar sérstaklega inn fyrir þig :)

Posted at 11:11 am by guffao
Comments (9)  

May 25, 2005
DK

OHH var búin að skrifa fullt en það strokaðist út þannig að þetta verður stutt !
Ég er að fara til Danmerkur á miðvikudaginn til sunnudags og ástæðan er að ég var boðuð í viðtal í skólanum þann 2. júní bara að ganga frá formsatriðum !
En það verður líka gaman að hitta Tinnu, Ranna, Sólveigu og Hjalta :)
Annars er bara allt gott að frétta, fór með Emil og Sjöfn í ungbarnasund um daginn og vá hvað ég var stolt af litla frænda sem að grét ekkert (bara svolítið hneykslaður stundum) En þetta var án efa það sætasta sem að ég hef séð. Hann er algjört gull ég sakna hans alltaf svo ótrúlaga mikið þegar ég fer frá honum :-/
Svo er hann Arnar Máni að koma í heimsókn núna en hann er orðinn rúmlega fimm kíló mánaðargamall :) algjört rassgat ! Sé hann bara allt of sjaldan.
En nú er ég farin að taka til og síðan knúsa og kyssa Arnar Mána minn þangað til hann verður
pirraður á mér :)

Hérna eru myndir af litlu ljósunum í lífi mínu !





Bless í bili gott fólk !

 


Posted at 06:35 am by guffao
Comments (5)  

Apr 29, 2005
Bara eitthvað fyrir Hannes :)

Ég ákvað að setja inn nokkrar myndir af Finna og Klöru sem að komu í heimsókn um daginn og gistu auðvitað hjá okkur mömmu eina nótt. Það var ekkert smá gaman og þið sem að þekkið mig vitið hvað ég dýrka þessi systkyni mikið og nú getið þið séð hvað þau eru búin að stækka mikið :=) En ég ákvað að taka frí frá lærdómnum í dag og fór með Signýju litlu á rólóinn í Garðabænum og greyið hún þurfti að draga mig í burtu...þessi tæki eru snilld, systa þú veist það ! Núna er ég bara að tjilla með bjór í einni og sígó í hinni og njóta þess að vera ein heima, eða ekki þurfti nefninlega að sækja Danna í staffapartý og hann er steindauður. Þannig að ég er eiginlega ein heima :) Öfunda hann svo, hann er að fara í roadtrip þvert yfir Bandaríkin í einn mánuð og gat leigt íbúðina sína út á meðan..þess vegna er hann sko hér ! Og Hannes þetta blogg er aðallega fyrir þig :)

Posted at 03:17 pm by guffao
Comments (5)  

Apr 25, 2005
Litli prinsinn !

Jæja gott fólk, þá er komin til að blogga smá. Það kom yndislegur prins í heiminn á sumardaginn fyrsta hann var 16 merkur og 52 cm. Ég fékk svo að kíkja á þau seinna um kvöldið og smellti nokkrum myndum af honum. Síðan keyrði ég þau heim daginn eftir og hann er búin að vera vær og góður þessa fyrstu daga..:)


Æðislegur


Hún stendur sig svo vel þessi elska

Það er nú annars ekki frá miklu að segja öðru nema ég fór á djammið á miðvikudaginn, ekkert ósvipað og það síðasta bara alltaf gaman !Ég og Helena erum síðan bara búnar að hanga á bókasafninu að læra, voða gaman en gerðum þó smá tilbreytingu og fórum að læra á catalinu með bjór í hönd á laugardagskvöldið :)

En ég er allaveganna alveg að verða búin með öll þessi skilaverkefni svo að nú er það bara stærðfræðipróf og vinna frammundan...jejj peningur(eða ekki, fer kannski allt í skuldir).
Ég fer bráðum að setja inn myndir af litla og frá gærkvöldinu þegar ég, Systa og Auður fórum á einhvern þvílíkt skemmtilegan leikvöll með allskonar skátatækjum, okkur leið eins og við værum aftur orðnar tíu ára....




Posted at 08:02 am by guffao
Comments (6)  

Apr 12, 2005
Emil Andri

Hæ ég ætla að reyna að hafa þetta stutt en það sem að er helst að frétta er auðvitað mikið djamm undanfarið og ekkert smá gaman. Byrjuðum hjá Helenu á laug þar sem að við vorum nokkrar saman, fórum á fullt af stöðum og það sem að gerði þetta svo skemmtilegt var að við vorum með rush og bárum það upp að nefinu á nánast ÖLLUM sem að gengu framm hjá okkur...bara eins gott að enginn hafi verið með hjartagalla. Jæja eftir djammið fór ég síðan í eftirpartý hjá Auði Ósk, soldið langt síðan ég hef farið þangað ! En það var mjög gaman drukkum íslenskt brennivín...ojj samt ! Sunnudagurinn var sko almennilegur þynnkudagur enda komum við ekki heim fyrr en tíu, geri aðrir betur :) Á mánudaginn voru afrekin heldur ekkert rosalega mikil, lítið í skólanum enda komu Emil Andri og Sjöfn til mín og voru heillengi í heimsókn þannig að ég komst ekki í skólann, það var líka miklu skemmtilegra að vera með þeim Emil Andri er náttúrulega bara besti gaurinn :) Ég tók auðvitað fullt af myndum af þeim sem ég linka á hérna niðri...Endilega kíkið á krúttið ! En nú er bara spurning hvort að ég eigi að fara í vinnuna þar sem að röddin mín er í tómu tjóni, tala eins og ég sé búin að reykja og drekka í fimmtíu ár..ekkert spes ! Bæ í bili

Posted at 06:19 am by guffao
Comments (10)  

Mar 5, 2005
SMÁ UPDATE !


Jæja það er ekki af ástæðulausu að ég skrifaði hérna til hliðar að hann Gísli Marteinn væri yndislegur :)
Ég og ein önnur stelpa úr skólanum fengum að fara upp á rúv í starfskynningu hálfan dag og ég er ekki búin að hætta að brosa síðan. Fengum að vera í stúdíóinu þegar var verið að taka upp Kvöld með G.M og gaurinn er snillingur, tók geðveikt vel á móti okkur, kynnti okkur fyrir gestum kvöldsins og allskonar. Fengum líka að fylgjast með gangi mála á fréttastofunni og loks útsendingu frétta og Kastljósinu(vorum voða svalar með svona hlustunartæki þannig að við heyrðum líka í útsendingarfólkinu), var reyndar svolítið stressuð um að hnerra eða e-d álíka sem hefði heyrst. En vá hvað þetta er allt öðruvísi en ég hélt. Kom mér á óvart hvað Logi, Bogi og allir voru mjög næs. Nóg um þetta, veit allaveganna að þið fáið að sjá mig þarna eftir 4-5 ár þegar ég er búin með námið mitt, úff örugglega geðveikt að vera fréttamaður !

Ég fór líka í vikunni á Litla hraun að taka myndir og endaði með að það kom lögga og tók niður nafnið mitt og fleira aþví henni fannst ég vera búin að sniglast svo lengi þarna í kring(en sagði að´ef ég hefði staðið 2 metrum fjær mætti ég nota allar myndirnar) sjáum bara til hvort að ég fái áminningu eða eitthvað heim :(

Auður Ósk átti afmæli 3. mars og bauð okkur öllum í lasagne og fleira góðgæti. Það var mjög gaman enda langt síðan maður hefur komið í Holtagerðið góða, ég hef nefninlega misst af öllum eftirpartýunum.

Sesselíja Kisan mín er flutt frá mér, hún fær að búa hjá Láru frænku því að þar kemst hún út og getur leikið sér, hún er svo mikið veiðidýr þessi elska. Ég veit að það eru margir sem að fatta mig ekki en ég er búin að eiga hana í 12 ár og hún er eins og systir mín og það var ógeðslega erfitt að fara með hana, ég og mamma vorum bara alveg miður okkar og sjáum eftir því að hafa flutt í salina og hvað þá þessa blokk, það þarf alltaf að vera ein svona alveg ÓGEÐSLEGA leiðinleg en ég er sko búin að fara upp til hennar og rífa soldin kjaft, enda er hún að pæla í að flytja hahah (og ég sagði við hana að það hlyti nú að vera erfitt fyrir konu eins og hana að búa í fjölbýli). Nei en svona án alls gríns þetta er mjög leiðinlegt mál og ömurlegt að hún sé ekki hérna hjá mér. Veit samt að Lára er góð við hana...er það ekki ?

Og nú veerð ég að fara að læra, búin að vera aðeins of mikill tossi þessa önn :(

En allaveganna góða skemmtun þeir sem ætla að djamma, og ef þið eruð að fara í bíó þá mæli ég með Million dollar baby, reyndar svolítið löng...en mjög góð :)

 

Posted at 05:54 am by guffao
Comments (7)  

Feb 18, 2005
Af hverju er lífið svona flókið ?

Ég er að segja það ég skil ekki hvað lífið er flókið....varð bara að tjá mig aðeins, vildi að ég gæti skrifað so miklu meira hvað ég er að hugsa !!!!! En góða skemmtun um helgina gott fólk !

Posted at 10:22 am by guffao
Comments (12)  

Af hverju er lífið svona flókið ?

Ég er að segja það ég skil ekki hvað lífið er flókið....varð bara að tjá mig aðeins, vildi að ég gæti skrifað so miklu meira hvað ég er að hugsa !!!!! En góða skemmtun um helgina gott fólk !

Posted at 10:10 am by guffao
Make a comment  

Feb 7, 2005
mamma mia !

hello folks Langt síðan ég hef bloggað, var að koma úr bíói með pabba mínum, fórum á meet the fockers, mjög skemmtileg. Elska líka að gera eitthvað með pabba, sakna hans alltaf so voða mikið ! En það er svo sem ekki mikið búið að gerast fyrir utan mikið djamm og alltaf gaman þar :) Vildi bara hreinlega ekkert vera að gera nema djamma og drekka og skemmta mér vel..ha alkalegt, finnst þér ? Neinei það er líka alltaf gaman í skólanum endalausar heimsóknir í spennandi fyrirtæki og skemmtileg verkefni sem að gilda yfirleitt 35% eða meira t.d er ég að taka mjög skemmtilegt lífsreynsluviðtal við mjög svo áhugaverðann og skemmtilegann einstakling, elska að vera með lappann minn og myndavélina að stússast. Síðan er ég líka að gera plakat fyrir DÍS og Auður Ösp brá sér í þetta flotta hlutverk að vera hin óvenjulega venjuleg stelpa. Hún var ekkert smá flott og þetta fór henni svo vel, við tókum allskonar myndir og meðal annars á Hótel Borg og svo var mamma so elskuleg að leyfa okkur að nota hjá KBBanka einnig sem sviðsmynd. Ekkert smá skemmtilegur dagur enda er þetta það sem að ég mun vinna við í frammtíðinni :) Bara svona í lokin þá set ég hérna mynd af mömmu minni góðu sem að ég vann aðeins með í photoshop, ekki það að hún sé ekki nógu falleg fyrir ! En síðan set ég bráðum plakatið fyrir DÍS líka hingað, bara þegar það er alveg tilbúið :)

Posted at 04:26 pm by guffao
Comments (6)  

Jan 20, 2005
Litli prinsinn er kominn

Hæ vildi bara segja ykkur að ég fór upp á spítala í gærkvöldi að sjá níu tíma gamlann frænda minn. Og það var yndislegt að sjá þessa litlu fallegu fjölskyldu, þau voru svo hamingjusöm og þetta fór þeim svo vel....Og hann er algjört krútt ég get ekki lýst því. Ég tók nú nokkrar myndir en það er sanngjarnt að þið sjáið hann fyrst áður en að ég skelli fallegasta á netið ! Sjöfn var svo dugleg og leit svo vel út og Jói líka, þetta er bara yndislegt að sjá svona lítið saklaust kríli sem að ég verð að fá að passa stundum :) EN SJÖFN OG JÓI INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ FALLEGA DRENGINN YKKAR

Það verður nú gaman í öllum fjölskylduboðum, það er ekki bara nýr prins í föðurfjölskyldunni..neinei Íris litla frænka er líka með einn lítinn á leiðinni, voða sæt með bumbuna sína. Já það er ekki hægt að segja annað en að ég er rík frænka :)

Posted at 09:35 am by guffao
Make a comment  

Next Page

   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


Systa og Ég

Sniðugt fólk sem bloggar

Systa

Okkar sameiginlega heimasíða

afrekið mitt

Lára frænka

Regína

Auður yndi í D.C

Hjalti frændi

Auður Zoega

Guðrún

Katrín krútt

Sólveig

Bjarnveig

Yngra fólkið

Óli frændi

Birkir frændi

Selma frænka

Elín Rós

Yngstu krúttin

Alexander Breki

Lilli Sjafnar og Jóa

Arnar Máni

Myndaalbúm

Nýtt myndaalbúm !

áramót 2004

Afmælið hennar Systu

>

http://guffa.myphotoalbum.com/albums.php


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed